Eyja hinna dauðu
Pétur Grétarsson slæst í för með hlustendum á leið í tónleikasal. Hann bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast dagskrá sinfóníutónleika sem taka við í beinni útsendingu.
Ása Briem ræðir við Fabio Biondi hljómsveitarstjóra tónleikanna. Í þættinum hljómar verkið Sonnerie de Sainte-Geneviéve du Mont-de-Paris, eftir Marin Marais. Fabio Biondi leikur á fiðlu, Jordi Savall á gömbu, Pierre Hantai á sembal og Rolf Lislevand á théorbu.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.