Eyja hinna dauðu
Pétur Grétarsson slæst í för með hlustendum á leið í tónleikasal. Hann bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast dagskrá sinfóníutónleika sem taka við í beinni útsendingu.
Ása Briem ræðir við Hildi Guðnadóttur tónskáld og sellóleikara. Í viðtalinu heyrist ómur af eftirtöldum tónverkum:
Ryuichi Sakamoto: Meginstef, úr The Revenant
Hildur Guðnadóttir: Self, af plötunni Mount A
Hildur Guðnadóttir: Bathroom Dance, úr Joker
Hildur Guðnadóttir: The Door, úr Chernobyl
Í hléi er rætt áfram við Hildi Guðnadóttur tónskáld og sellóleikara og leikin tónlist Hildar af plötunni Where to From sem kom út hjá Deutsche Grammophon í október 2025: Erindi og Make Space

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.