Sinfóníukvöld - Á leið í tónleikasal

Þáttur 12 af 25

Pétur Grétarsson fylgir hlustendum áleiðis í tónleikasal til heyra Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja fiðlukonsert eftir Ludvig van Beethoven og sinfóníu eftir Dmitri Shostakovitsj.

Í þættinum hljómar efni úr safni Ríkisútvarpsins:

Úr þjáningunni sprettur gleði.

Marta Nordal, Valur Freyr Einarsson og Björn Hlynur Haraldsson lesa úr bréfum Beethovens sem komu út í bók Árna Kristjánssonar árið 2002. Beethoven í bréfum og brotum. Elísabet Indra Ragnarsdóttir gerði þáttinn árið 20023

Ástir gömlu meistarnna

Guðjón Ingi Guðjónsson fjallaði um fjölskyldulíf Beethovens í þáttaröð sinni Ástir gömlu meistaranna árið 2002.

Tregi tónskáldsins vegna ástamálanna og heyrnarleysisns birtist ekki síður í bréfum hans til bræðra sinna árið 1802. Lárus Pálsson leikari las erfðaskrá hans fyrir útvarpshlustendur árið 1947 þegar 120 ár voru liðin frá andláti Beethovens.

Upplestur "Erfðaskrá Beethovens"

Frumflutt

15. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sinfóníukvöld - Á leið í tónleikasal

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.

Þættir

,