Að láta hverjum degi nægja sína þjáningu
Látum kvöldið líða hjá í mildri móðu, látum hverjum degi nægja sína þjáningu.
Í þættinum er spjallað systkinin Breka og Sindra í hljómsveitinni Emmu um plötuna þeirra Halidome sem kom út í fyrrasumar. Nýlega var platan tilnefnd í flokknum „best geymda leyndarmálið“ hjá tónlistarverðlaunum Reykjavík Grapevine. Ásamt því eru spiluð kósý gítarlög frá hljóðskýinu góða.
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður
Róshildur - fiðrildahvíslarinn v1 (voice memo 03.01)
Eydís Kvaran - Ég borða landið mitt (WIP)
HáRún - Tilvera - Tónabíó 8.feb ‘25
Rakur - Rotna v.1 (Stofutónleikar hjá Francis)
Emma - Stranger now
Emma - Dream on (brot)
Emma - Oh, Abide
Emma - Hide (brot)
Emma - Shorelines

Griðarstaður grasrótarinnar.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson.