Undanfarið hefur nokkuð magn af grasrótartónlist horfið af streymisveitunni Spotify. Við Ólátabelgirnir reynum að komast til botns í málinu með því að taka púlsinn á senunni. Af hverju er tónlistarfólkið að taka tónlistina niður? Hvar er þá hægt að hlusta á hana? Hvað með þau sem vilja ekki fjarlægja hana?
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.