Hagaskóli, uppsagnir hjá ríkislögreglustjóra, leiðtogafundur og verkfalli aflýst
Foreldrar barna í Hagaskóla segja börn sín hafa fengið tilmæli um að tala ekki um atvik þar sem tveir kennarar áttu í ástaratlotum á skólatíma.
Uppsagnir eru ekki á dagskrá Orkuveitu Reykjavíkur að sögn stjórnarformanns, þrátt fyrir tilmæli borgarstjóra um að nauðsynlegt sé að hagræða í rekstri fyrirtækisins.
Stýrivextir Seðlabankans verða átta prósent fram á næsta ár en tilkynnt var í morgun að þeim yrði haldið óbreyttum.
Formaður Viðreisnar segir að ríkisstjórnin ætli að reka ríkissjóð með afgangi þrátt fyrir spár Seðlabankans um annað.
Allt stefnir í að Hakeem Jeffries verði fyrsti svarti þingmaðurinn til að gegna valdamiklu embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
Metnaðarfullur, byltingarkenndur og biðarinnar virði. Þannig lýsa gagnrýnendur tölvuleiknum GTA 6. Leikurinn kemur út á Íslandi á miðnætti.

Fréttir.