
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Varaformaður Viðreisnar kannast ekki við orðróm um að fleiri úr þingflokknum hugsi sér til hreyfings eftir vistaskipti Ingvars Þóroddssonar. Forseti Alþingis frábiður sér ásakanir Ingvars um að hún hafi lekið upplýsingum um vistaskiptin.
Jensen Huang segist reiðbúinn að snúa aftur í stól forstjóra tæknirisans Nvidia. Hann lét af störfum í síðustu viku eftir að upp komst um framhjáhald hans með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari.
Einn af hverjum átta háskólastúdentum tekur námslán sem er mikil fækkun á síðustu árum.. Háskólanemi sem ekki tekur lán segist vilja vera skuldlaus. Forseti Landssamtaka stúdenta segir lánin hafa fælingarmátt.
Ekki stendur til að íslensk yfirvöld fari að fordæmi Danmerkur og fjögurra annarra Evrópuríkja og senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda.
Það er ómannúðlegt að taka rafmagn af fólki í þeim kulda sem nú er, segir talskonar íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða.
Neyðarstjórn Norðurorku er í viðbragðsstöðu vegna aukinnar heitavatnsnotkunar í kuldakasti.
Umsjón: Erla María Markúsdóttir
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Fréttir.