Kvöldfréttir útvarps

Virkjanamál, kolefnisgjald og sala á útvörpum margfaldast

Virkjanir undir 25 megavöttum þurfa ekki að fara í gegnum rammaáætlun ef frumvarp Umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðuneytisins nær fram að ganga.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja litlu breyta að kolefnisgjald hækki um 2,5 prósent í stað fimm komma tveggja prósenta á næsta ári. Samtökin kalla eftir heildarendurskoðun á gjaldinu og segja það ekki hafa skilað tilætluðum loftslagsávinningi.

Jensen Huang er hættur störfum sem framkvæmdastjóri tæknirisans Nvidia. Hann hefur viðurkennt að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni með konu sem sögð er vera kínverskur njósnari.

Sala á útvörpum hefur stóraukist eftir að bæklingur Almannavarna Verum viðbúin kom út í byrjun mánaðarins. 700 útvörp hafa selst hjá Elko síðan bæklingurinn kom út fyrir rúmri viku.

Umsjón: Erla María Markúsdóttir

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,