
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Ljósmynd og fingraför sem tekin voru af serbneskum manni á íslenskri lögreglustöð leiddu í ljós að hann hafði verið eftirlýstur á Írlandi í tæpa tvo áratugi.
Ísland nær ekki markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 að mati Loftslagsráðs. Ísland stendur sig áberandi verst Norðurlandanna.
Takmarka á notkun sæðisfruma úr sama einstaklingi til tæknifrjóvgunar samkvæmt frumvarpsdrögum heilbrigðisráðherra. Endurskoða á rétt þeirra sem eru getin með gjafafrumum til að vita um líffræðilegan uppruna.
Forseti sænska þingsins hefur framlengt frest leiðtoga Moderaterna til að mynda ríkisstjórn – nær sextíu dögum eftir kosningarnar í Svíþjóð.
Breski barnabókahöfundurinn og grínistinn David Walliams hefur verið sakaður um óviðeigandi hegðun gagnvart fjölda ungra kvenna. Forlagið HarperCollins hefur hætt útgáfu bóka hans.
Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Fréttir.