Ólympíumótið í skák og Íslendingurinn sem vann Magnus Carlsen
Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Ólympíumótið í skák sem lýkur nú um helgina. Vignir Vatnar, stórmeistari í skák og liðsmaður íslenska hópsins í Úsbekistan, er gestur…
Í þessum þætti Krakkaheimskviða er hraðtískuheimurinn og ofneysla mannanna til umfjöllunar. Karitas ræðir við Ester Öldu, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun og Gunnar Dofra hjá Sorpu um hvað það er sem við hendum, hvernig við getum hent minna og hvað verður um fötin sem við viljum ekki lengur nota.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir