Hvað eru gagnaver?
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við gagnaver, hvað þau eru, hvernig þau virka og hvers vegna þau eru umdeild. Fréttamaðurinn Bjarni Pétur Jónsson er gestur þáttarins.
Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir