Saga Kóreu og K-pop
Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Austur-Asíu og kynnum okkur sögu Norður- og Suður-Kóreu. Karitas skoðar svo Kóreupop með dyggri aðstoð K-pop aðdáandans Rögnu Fríðu…

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir