Betrun 9. þáttur – Stuðningur skiptir sköpum
Vandi þeirra sem eru í fangelsum er margþættur og ef ekki er unnið á vanda þeirra á meðan þeir afplána er hætta á að þeir brjóti af sér aftur og komi í fangelsi á nýjan leik. Ungu…
Margir þeirra sem eru dæmdir í fangelsi ljúka afplánun á Vernd en eitt af skilyrðum þess að fá heimild til þess er að vera án vímuefna, í vinnu eða öðrum úrræðum o.s.frv. Fortíðin mótar marga í fangelsiskerfinu og snemmtæk íhlutun hefði breytt mörgu. Exit er nýtt verkefni fyrir fólk sem hefur lokið afplánun en flestir þeirra sem enda í fangelsi eru með vímuefnavanda. Viðmælendur: Guðmundur Gíslason, Hafdís Guðmundsdóttir og Þráinn Farestveit. Tæknimaður Betrunar er Lydía Grétarsdóttir.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.