Betrun 9. þáttur – Stuðningur skiptir sköpum
Vandi þeirra sem eru í fangelsum er margþættur og ef ekki er unnið á vanda þeirra á meðan þeir afplána er hætta á að þeir brjóti af sér aftur og komi í fangelsi á nýjan leik. Ungu…
Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.