Betrun 9. þáttur – Stuðningur skiptir sköpum
Vandi þeirra sem eru í fangelsum er margþættur og ef ekki er unnið á vanda þeirra á meðan þeir afplána er hætta á að þeir brjóti af sér aftur og komi í fangelsi á nýjan leik. Ungu…
Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er farið í heimsókn á trésmíðaverkstæðið á Litla-Hrauni og rætt við afbrotafræðing og framkvæmdastjóra Verndar um stöðu mála á Íslandi þegar kemur að fangelsum landsins.
Viðmælendur í þættinum eru Helgi Gunnlaugsson, Jón Ingi Jónsson og Þráinn Farestveit. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður þáttaraðarinnar Betrun.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.