Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar
Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er…
Það þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.