Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar
Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er…
Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur.
Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn Farestveit. Tæknimaður þáttaraðarinnar er Lydía Grétarsdóttir.
Lesarar í þættinum eru: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Ævar Örn Jósepsson.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.