Betrun 9. þáttur – Stuðningur skiptir sköpum
Vandi þeirra sem eru í fangelsum er margþættur og ef ekki er unnið á vanda þeirra á meðan þeir afplána er hætta á að þeir brjóti af sér aftur og komi í fangelsi á nýjan leik. Ungu…
Eins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað þess að leyfa þeim að snúa heim til Íslands?
Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur Hermannsson, Halldór Guðmundsson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.
Lesarar í þættinum eru: Björn Þór Sigbjörnsson, Gunnar Hansson, Pétur Grétarsson og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.