Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar
Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er…
Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson og Stella Blöndal. Jafnframt er rætt við nemendur Matvælaskólans og gesti á opnu húsi í MK. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.