Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar
Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er…
Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þættinum eru Bóas Valdórsson og Sigurður Árni Reynisson. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.