Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar
Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er…
Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.