16:05
Síðdegisútvarpið
Íbúð á Heklureit, fagmennska í ferðamennsku, skák og geimurinn
Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Ný þáttaröð - Með okkar augum lítur dagsins ljós í ágúst hér á ruv og við tókum smá forskot því við laumuðum okkur niður í st. 12 þar sem upptökur voru í fullum gangi.

Guðmundur Björnsson aðjúnkt í ferðamálafræði við HÍ og faglegur umsjónarmaður leiðsögunáms hjá Endurmenntun HÍ skrifaði áhugaverða grein á Vísi í dag undir yfirskriftinni Ferða­leiðsögn í skjóli á­byrgðar – tími til kominn að endur­hugsa nálgunina. Þar segir m.a að að það ríki undarleg þversögn í íslenskri ferðaþjónustu og á meðan almenningur, fræðasamfélagið og stór hluti atvinnugreinarinnar viðurkenni mikilvægi fagmennsku og sérþekkingar í leiðsögn ferðamanna þá virðist stjórnsýslan líta á það allt öðrum augum. Guðmundur kom til okkar í spjall

Fyrstu mynd­ir ­sjón­auk­ans Veru Ru­bin birtust í fyrrakvöld, en gríðarlegt magn gagna frá hon­um kann að veita svör um sögu al­heims­ins, ní­undu plán­etuna og huldu­efni. Sæv­ar Helgi Braga­son, Stjörnu Sævar, kom til okkar og sagði okkur allt um þetta.

Færsla Bergs Þorra Benjamínssonar á Facebook í fyrradag hefur vakið mikla athygli, en þar rýnir hann í teikningar á nýrri íbúð á Heklureitnum, og hefur sitt hvað við skipulag hennar að athuga og verð að athuga. Við heyrðum í Bergi.

Skákáhugi á Íslandi er gríðarlegur og þar eigum við heimsmet líkt og í mörgu öðru. Við fengum til okkar stórmeistarann Vigni Vatnar og spáðum í skákina og helstu ástæður fyrir því að hún nýtur svo mikilla vinsælda á Íslandi um þessar mundir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,