07:03
Morgunútvarpið
25. júní - Langar umræður á þingi, alþjóðamál og fótboltamót
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Sumarið litast af fótboltamótum hjá fjölda fjölskyldna og í dag hefst Orkumótið í Vestmannaeyjum. Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri, verður á línunni í upphafi þáttar.

Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, kemur í sitt hálfsmánaðarlega spjall um fjármál heimilisins.

Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, stjórnmálafræðingur, ræðir við okkur um rannsókn sem hún vann að fyrir Arctic Initiative við Harvard háskóla sem sýnir að orðræðan um að Kína sé að kaupa upp norðurslóðir sé ekki á rökum reist.

Veiðigjaldsumræðan á þingi er orðin sú sjöunda lengsta í sögunni. Sigurður Pétursson, sagnfræðingur, ræðir við okkur um þau mál sem hafa leitt til lengstu umræðanna á Alþingi.

Google leitarvélin eins og við höfum þekkt hana og hefur skilgreint leit að upplýsingum langleiðina í þrjá áratugi, er að breytast hratt. Við ræddum það síðasta haust að markaðsrannsóknarfyrirtækið Gartner áætlaði þá að umferð á leitarvélum myndi minnka um 25% fyrir árið 2026 þar sem neytendur færu í auknum mæli að nýta sér gervigreindartól. Leitum í Safari vafranum með Google hefur nú fækkað í fyrsta sinn síðan árið 2002, samkvæmt frétt Bloomberg. Við ræðum þróunina við Hreggvið Steinar Magnússon framkvæmdastjóra Ceedr.

Við ræðum Trump, alþjóðamálin og stöðuna við Magnús Svein Helgason sagnfræðing.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,