18:00
Kvöldfréttir útvarps
Banaslys, rannsókn á hvarfi fiðluleikara mögulega tekin upp aftur og hitabylgja
Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Fréttir

Einn fórst þegar bátur sökk út af Patreksfirði.

Lögreglan útilokar ekki að hefja á ný rannsókn á máli írska fiðluleikarans Sean Bradley sem hvarf sporlaust fyrir sjö árum eftir að hann flaug frá Íslandi til Spánar.

Rauð veðurviðvörun verður í gildi víða í Frakklandi á morgun. Hitamet voru slegin á Spáni og í Portúgal um helgina í mikilli hitabylgju sem geisar í Evrópu.

Sósíalistar flykktust síðdegis á aðalfund Vorstjörnunnar, styrktarfélags Sósíalistaflokksins. Miklar deilur hafa verið innan flokksins og snúast meðal annars um fjárreiður Vorstjörnunnar.

Enn er rætt um veiðigjald á Alþingi og allar horfur á að þingstörf teygist inn í júlímánuð.

Sveitarstjóri Rangárþings Eystra segir það hvorki markmið né vilja sveitarfélagsins að stórfelld uppbygging eigi sér stað innan Þórsmerkur en lóðir sem eru samanlagt tæpir tuttugu og fimm hektara hafa verið auglýstar til leigu.

Er aðgengilegt til 30. júní 2026.
Lengd: 10 mín.
,