• 00:10:38Fæðuöryggi í neyð
  • 00:27:48Jóhannes Kr. á vettvangi
  • 00:51:02Ófrávíkjanleg krafa um öryggi sjómanna
  • 01:08:01Fréttir vikunnar

Morgunútvarpið

Formaður Sjómannasambands Íslands,fréttir vikunnar,Á vettvangi og fæðuöryggi í neyð

Fjallað verður um viðbúnað Íslands við hamförum og mikilvægi þess að tryggja heilsu og öryggi landsmanna þegar vá steðjar að á fundi í Veröld - húsi Vigdísar í hádeginu í dag. Þar velti Ólafur Ögmundarson, prófessor og deildarforseti matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands, fyrir sér fæðuörygginu á Íslandi þegar neyðin knýr dyra og hann ætlar að koma til okkar.

Á vettvangi er hlaðvarp þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson færir almenningi upplýsingar, sögur og innsýn í aðstæður og starfsumhverfi sem almenningur hefur sjaldan aðgang að. Jóhannes hefur í eitt og hálft verið við upptökur með lögregunni á höfuðborgarsvæðinu og fjallar um það í þáttaröðinni, sem fór í loftið í vikunni. Jóhannes kemur til okkar.

Þrír fórust þegar línuskipið Jökull ÞH sökk austur af landinu á miðvikudagskvöld. Fjórtán var bjargað á lífi en björgunaraðgerðir fóru fram við afar krefjandi aðstæður. Valmundur Valmundsson, sjómaður og formaður Sjómannasambands Íslands, segir slysið mikið bakslag í öryggismálum á sjó og að krafan um að sjómenn snúi aftur heim eigi að vera ófrávíkjanleg. Valmundur kemur til okkar.

Við förum yfir fréttirnar og þau ætla að vera með okkur; Tinna Björt Jónsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu og Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,