Morgunútvarpið

Kári Stefánsson,Gummi tækni,höfundar skaupsins og hvað eru kínverjar að pæla

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nýkomin heim frá Kína en hún telur mikla möguleika felast í auknum samskiptum Íslendinga við Kínverja. Nefndi hún meðal annars sjávarútveginn og jarðhitann í því samhengi. En hvað eru Kínverjar að pæla þegar þeir beina sjónum sínum til Íslands og Evrópu? Helgi Steinar Gunnlaugsson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu og sérfræðingur í málefnum Kína, verður á línunni.

Guðmundur Jóhannsson, tæknisérfræðingur Morgunútvarpsins en fyrst og fremst góð manneskja, kemur til okkar með það nýjasta úr heimi tækninnar.

Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að bandaríska lyfjafyrirtækið Amgen hafi nýtt rannsóknir á erfðaefni nærri tvö hundruð þúsund Íslendinga við þróun nýs megrunarlyfs. Það verður aðgengilegt árið 2028 og keppir við vinsæl lyf á hinum verðmæta markaði þyngdarstjórnunarlyfja. Amgen keypti DeCode árið 2012 og Bloomberg rifjar upp hvernig vísindamenn DeCode söfnuðu erfðaefni Íslendinga, sem var upphaflega umdeilt. Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur sagst hafa áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ en er það búið að gerast? Kári kemur til okkar.

Að skrifa Skaupið í ár var kannski örlítið meira krefjandi verkefni en fyrri ár í ljósi þess að hér fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla sem bókstaflega klauf þjóðina í herðar niður. Hvernig ætlar þessi vaski hópur að sameina þjóðina á gamlárskvöld? Snjólaug Lúðvíksdóttir og Kristín Þóra Haraldsdóttir eru á meðal þeirra sem tóku að sér þetta verðuga verkefni og ætla að kíkja til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,