Morgunútvarpið

Mýs í Hrísey,sprengjuhótanir,Logi Bergmann með ævisögu,fréttir vikunnar og endurvinnsla til einskis?

Músagangur í Hrísey vekur athygli á Norðurlandi en Ólafur Pálmi Agnarsson hjá Meindýravörnum Norðurlands telur líklegt að stofn músa hafi verið að byggjast upp í eynni um nokkurra ára skeið án þess að fólk tæki eftir hvert umfangið er fyrr en nú nýlega. Við heyrum í Ólafi.

Heimildin greinir frá því í dag að íslenskar fernur séu sendar í brennslu á ný í stað endurvinnslu, þremur árum eftir að stjórnvöld, Úrvinnslusjóður og Sorpa lofuðu að tryggja endurvinnslu þeirra. Sumarið 2023 greindi Heimildin frá því að langflestar fernur sem flokkaðar voru á Íslandi enduðu í brennslu í sementsverksmiðjum í Evrópu. Umfjöllunin varð til þess að Sorpa baðst afsökunar og Mjólkursamsalan krafðist réttrar meðferðar á umbúðum sínum. Nú virðist sagan vera að endurtaka sig. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, blaðamaður á Heimildinni kemur til okkar.

Sprengjuhótunum var beint að fjölda farþegaflugvéla í millilandaflugi í gær. Engar sprengjur hafa fundist en vélarnar hafa verið á flugi víða í Evrópu. Hótanirnar höfðu áhrif á á annan tug flugferða en hótanir hafa borist flugfélögum síðustu daga. Ríkislögreglustjóri segist fylgjast með atburðarásinni og við fáum Markús Þórhallsson til að fara yfir stöðuna með okkur.

Logi Bergmann unir sér vel í Washington þessa dagana ásamt Svanhildi Hólm, eiginkonu sinni og sendherra Íslands í Bandaríkjunum. Logi ætlar að koma til okkar og það liggur beinast við að ræða við hann um nýafstaðnar þingkosningar. Við ætlum líka að ræða við hann um bók sem hann var að skrifa og heitir Aftur á bak og er ævisaga hestamannsins Herberts Kóka Ólasonar sem hefur átt ævintýralegt lífshlaup.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og rapparinn Emmsjé Gauti koma til okkar og fara yfir fréttir vikunnar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,