
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Kveikur sneri aftur í gærkvöld en í þættinum var fjallað um mikla notkun sterkra geðlyfja, svokallaðra geðrofslyfja, á íslenskum hjúkrunarheimilum. Tæplega 40% íbúa hjúkrunarheimila fengu slík lyf í fyrra, margir án greiningar á alvarlegum geðsjúkdómi. Ættingjar sem Kveikur ræddi við telja að fólkið þeirra hafi verið lyfjað fram úr hófi á hjúkrunarheimili. Við leitum viðbragða hjá Sigurði Ágústi Sigurðssyni, formanni Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra beindi orðum sínum að Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hún ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í síðustu viku. Ræðan vakti mikla athygli en hún sagði það heigulsskap að vilja ekki semja um frið á Gaza. Við ræðum við Þorgerði Katrínu um viðbrögðin við ræðunni og hvernig breytt heimsmynd birtist m.a. á allsherjarþinginu.
60 ár eru liðin síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og af því tilefni fáum við til okkar Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og ræðum stöðu RÚV í dag. Fjölmiðlar eiga undir högg að sækja og þar er RÚV ekki undanskilið. Hvernig horfir staðan við útvarpssjóra?
Enn þann dag í dag fáum við fréttir af því að litið sé niður á íþróttir kvenna með einhverjum hætti en fjallað verður um um þátttöku kvenna í íþróttum í dag á málþingi á vegum ÍSÍ og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, yfirmaður hæfileikamótunar kvenna og landsliðsþjálfari U15 ára liðs kvenna hjá Knattspyrnusambandi Íslands, tekur þátt í málþinginu. Hún býr yfir dýrmætri reynslu eftir farsælan atvinnumannaferil í Noregi, Bandaríkjunum og Ástralíu og ætlar að koma til okkar.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.