Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Hjalti Karlsson,samgöngur yfir Hornafjarðarfljót,bylting hjá Spotify og fimm fyndnar

Nýr vegur yfir Hornafjarðarfljót var tekinn í notkun 24. júní og 1. september síðastliðinn hófst gjaldtaka. Hún er sjálfvirk og stök ferð kostar 1500 krónur. Skiptar skoðanir hafa verið um gjaldtökuna þó fólk sé almennt sammála um að brúin sé mikil samgöngubót. En hvernig gengur að rukka? Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs hjá Vegagerðinni, segir okkur frá því.

Guðmundur Jóhannson kemur til okkar með það nýjasta úr heimi tækninnar.

Hjalti Karlsson, hönnuður og annar tveggja stofnenda hönnunarstofunnar Karlssonwilker í New York kemur fram á alþjóðlegu hönnunarráðstefnunni AGI Open í Reykjavík síðar í vikunni. Hjalti flutti ungur til New York til að læra grafíska hönnun og hefur síðan þá unnið með stórstjörnum á borð við Rolling Stones, Aerosmith og Lou Reed og fyrirtækjum á borð við Nintento og Puma. Hjalti kemur til okkar í hönnunarspjall.

Sex fyndnar konur stíga á svið í Tjarnarbíói á föstudaginn þegar sýningin Eldklárar og eftirsóttar verður frumsýnd. Þær ætla að bjóða upp grínhlaðborð en þær hafa margoft sýnt spuna saman fyrir fullu húsi og nú róa þær á önnur mið með því að blanda uppistandi í dagskránna. Þuríður Elín Sigurðardóttir og Rebekka Magnúsdóttir kíkja til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,