Víðsjá

Aldrei las ég Laxness / Atómstöðin

Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er pólítíska ádeiluritið Atómstöðin, skáldverk sem segir sögu sveitastúlkunnar Uglu sem kemur að norðan til Reykjavíkur að læra á orgel. Hún ræður sig í vist á yfirstéttarheimili hjá þingmanninum og heildsalanum Búa Árland. Hún lærir hjá Organista sem er mikill módernisti og heldur eins konar kommúnu í Reykjavík og laumast á sellufund kommúnisma.

Gestur klúbbsins að þessu sinni er Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins og spjöllum við vítt og breitt um söguþráð og þemu verksins.

Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,