Víðsjá

KOK sýningarstjórnun, Tom Waits, Enginn deyr í Ikea/rýni

„Sýningarstjóri er aðili sem tekur þátt í því að miðla til áhorfenda og vera í þessu samneyti á milli listaverka, áhorfenda og listamanna. Sýningarstjórinn er ákveðin ljósmóðir, eða rökkurmóðir,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir um hlutverk sýningarstjórans, en hún ásamt þeim Becky Forsythe og Helenu Sólveigar Aðalsteinsbur eru KOK, kúratora kollektív sem vill efla samtal um stöðu sýningarstjórnunar hér á landi. Þær standa að baki málþingi um sýningarstjórnun og faglega þróun hennar í Norræna húsinu á morgun. Við ræðum við þær í þætti dagsins um hlutverk sýningarstjórans í íslensku samhengi. Hvað er sýningarstjóri og ætti hann kannski að kallast Kúrator?

Við heyrum einnig rýni Fríðu Þorkelsdóttur í nýja skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Enginn deyr í Ikea og hugað verður að lagi eftir Tom Waits sem fangar mögulega allan hans feril.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,