Víðsjá

Ítalskir bíódagar, Brothætt og Þegar Trölli stal jólunum/rýni.

Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá fjölbreyttri dagskrá helgarinnar í Víðsjá dagsins, sem lituð er ítölskum tónum.

Þriðji og síðasti ritúalinn í verkaseríu Steinunnar Knúts, Brothætt fer fram í Dómkirkjunni í kvöld. Ritúalinn nefnist Fyrirgefningin og er settur saman úr nafnlausum játningum frá almenningi sem verða fluttar af hinsegin kórnum og hljómsveitinni Evu í formi víxlsöngs. Víðsjá hitti Steinunni og Völu Höskuldsdóttur tónskáld í kirkjunni sem segja frá þeim heilandi mætti sem felst í því að játa brot sín og fyrirgefa sér og öðrum.

Þá fáum við leikhúsrýni, Sjöfn Asare skellti sér í Borgarleikhúsið, á nýja uppfærsu sígildrar jólasögu Dr. Seuss, Þegar Trölli stal jólunum. Sjöfn lýsir sinni upplifun á græna sérvitringnum sem þolir illa jólin og ráðabruggi hans í þætti dagsins.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,