Víðsjá

Erla Þórarinsdóttir í Listval, Grettissaga, Natasha S.

„Þetta er frá tímabili, miklu breytingaskeiði hvað varðar okkar heimsmynd. Og það hefur mikið slæðst inn hérna . Það er Gaza, Grindavík, kólóníalismi og terrorismi. Og bara plís lets talk about peace. Þetta slæðist inn á meðan maður er að teikna, en þegar ég er að teikna þá kem ég mér í ástand, bara einbeitingu,“ segir Erla Þórarinsdóttir sem opnaði nýverið sýninguna Enduróm í Listval. Þar sýnir hún teikningar og lágmyndir þar sem hún leitast við að láta verkin óma til áhorfandans, verka á hann og jafnvel virkja. Einnig málverk, með sterkum litum og blaðsilfri, sem komu til hennar líkt og úr undirdjúpunum, og sem umbreytast með tíma og endurspegla þá birtu sem býðst. Við hittum Erlu í þætti dagsins.

Við ræðum einnig við Brynju Þorgeirsdóttur sem tekur þátt í málþingi um Grettissögu í Eddu, á vegum Árnastofnunar og Miðaldastofu Háskóla Íslands á laugardag. Og í pistli dagsins fjallar Natsha S. um eigið tilhugalíf, stefnumótasíður og feðraveldið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,