Víðsjá

Jón Kalmann og gotneska.

Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma sér fyrir í íbúð á Bræðraborgarstíg og bíður þar eftir komu pípara til að setja upp nýtt klósett en hún grípur líka niður í ævisögu Jesú Krists á mótunarárum sínum, rétt áður en hann gengur nánast fullskapaður inn á svið Guðspjallanna. Við ræðum við Jón Kalmann í þættinum.

Haukur þorgeirsson, málfræðingur og sérfræðingur hjá Árnastofnun, flytur erindi um gotnesku í pistlaröð um forn tungumál og tengsl þeirra við okkar ylhýru íslensku.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,