Víðsjá

Guðmundur Lúðvík hönnuður / Svipmynd

Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka.Hann má ekki öskra; hér er ég og sjáið mig. Því ef það standa hundrað stólar í rými og allir eru að öskra og æpa þá verða svo mikil læti.“ Þetta segir Guðmundur Lúðvík sem var á dögunum tilnefndur til Hönnunarverðlauna íslands fyrir Backflip stólinn sem hann hannaði í samstarfi við danska hönnunarfyrirtækið HAY. Og það má segja að hér lýsi hann hinni skandinavísku fagurfræði sem hófst dönsku módernistunum þar sem notagildi, einfaldleiki og efnisval skiptir öllu máli. Guðmundur Lúðvík hefur búið og starfað í Danmörku frá aldamótum, þar sem hann lærði hönnun við konunglegu akademínuna. Áður hafði hann lært smíði og myndlist hér heima.

Guðmundur Lúðvík er gestur Víðsjár í Svipmynd og segir frá áhuga sínum á fellistólum sem hófst þegar hann var í vinnunni með mömmu sinni tíu ára gamall. Við ræðum einnig menntunina sem var allskonar, fyrirmyndir úr fjölskyldunni, danskan hönnunarheim og lífið í Vejle.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,