Víðsjá

Brynhildur Þorgeirsdóttir, Natasha S./pistill, Fasteignamartröðin/rýni

„ Sko. Þegar maður er orðin 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt að listaverkum á lager, þá þarf að grípa til einhverra ráða,“ segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari en hún opnaði sýningu á Korpúlfsstöðum um liðna helgi. Þar gefur að líta að líta höggmyndir frá löngum ferli en Brynhildur sýnir ekki eingöngu verk því hún hefur í raun fært alla vinnustofuna sína inná Korpúlfsstaði. Og þetta er ekki bara heimildasýning sem veitir innsýn í ævistarf Brynhildar heldur er þetta einnig sölusýning, þar sem Brynhildur kynnir til leiks nýja viðskiptahugmynd: “Buy my art before I die”. Meira um það í Víðsjá dagsins.

Natasha S. flytur fyrsta pistil í seríu um endurtekningu og Sjöfn Asare rýnir í Fasteignamartröðina sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,