Deilur um umdeildan dansara
Deilur hafa staðið yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík sem hverfast um mann á miðjum aldri sem hefur verið vændur um meinta ósæmilega og meinta ólöglega hegðun gegn unglingsstúlkum.
Í þætti dagsins beinum við sjónum að þeirri staðreynd að hlutfall kortaveltu Íslendinga sem fer fram erlendis hefur aldrei mælst hærra - og áhrifum þess á innlenda verslun. Árið 2022 var erlend netverslun Íslendinga um 23 milljarðar króna. Á síðasta ári var hún komin í 34,5 milljarða og samkvæmt mati Rannsóknarseturs verslunarinnar er búist við að hún fari í allt að 40 milljarða á þessu ári.
Rætt er við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.