Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta?
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur…
Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar veðursins voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir - þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Rætt er við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóra í Fjallabyggð, og Hildigunni H. H. Thorsteinsson, veðurstofustjóra.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.