
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan vanda.
Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Norska efnahagsbrotalögreglan Ökokrim er nú að gera rannsókn á þessu í öllu landinu. Þetta segir Ida Wangberg sem er einn af blaðamönnum norska blaðsins Klassekampen sem opinberaði þetta mál í lok ágúst.
Þessar fréttir frá Noregi tala inn í umræðu um einkarekin barnaverndarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda sem nú á sér stað í íslensku samfélagi eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur birti fréttaskýringu um þess konar fyrirtæki nú á þriðjudaginn.
Er algengt að menn með fortíð úr undirheimunum starfi við barnavernd á Íslandi? Rætt er um þetta við framkvæmdastjóra barnaverndar Reykjavíkur, Þyrí Höllu Steingrímsdóttur.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.