Þetta helst

Ríkið leigir hjúkrunarrými fyrir níu milljarða í Urriðahvarfi

Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024.

Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og þeir sem eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem svo gerði annan samning við ríkið um rekstur á hjúkrunarrýmunum.

Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljóna króna á mánuði fyrir rúmlega 10 þúsund fermetra eða samtals rúmlega 9 milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag

Hvernig kom það til að þessi leigusamningur var gerður á þessum tíma?

Rætt er Teit Guðmundsson, framkvæmdastjóra Heilsuverndar og eiginmann eins eiganda hússins í Urðarhvarfi, um þennan leigusamning og rekstur hjúkrunarrýmanna.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,