Þetta helst

Á slóð gjaldþrota á veitingamarkaði

Elís Árnason veitingamaður segist hafa orðið fyrir altjóni þegar hann seldi kaffihúsið Adesso og veitingastaðinn Sport og Grill í Smáralind árið 2024.

Hann seldi þessa staði til fjárfestanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar og að hann hafi bara fengið lítinn hluta kaupverðsins greiddan. Elís segist á endanum hafa þurft að taka tugmilljón króna bankalán til að borga til baka lán sem hvíldu á fyrirtækjunum og hann var í persónulegum ábyrgðum fyrir. Hann segir tjón sitt í viðskiptunum nema um 100 milljónum.

Helgi Magnús hefur ítrekað verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu mánuðina vegna fyrirtækja sem hann hefur átt sem farið hafa í þrot eða verið lokað af yfirvöldum. Í síðustu viku var sagt frá því að Skatturinn og lögreglan hefðu innsiglað Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi.

Fjallað er um þessa sögu í þætti dagsins og rætt við Elís, Helga Magnús og fleiri viðmælendur.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,