Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta?
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur…
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat.
Þetta er fyrri þáttur af tveimur en í næsta þætti er rætt við prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og formann Þroskahjálpar.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.