Helgarútgáfan rann ljúflega af stað að hádegisfréttum loknum. Þessi líka þrælfíni síðasti laugardagur janúarmánaðar sem mætti okkur og vorið nálgast óðfluga. Febrúar heilsar á morgun og það gengur vel að þreyja þorrann. Væntanlega fjölmörg sem voru á leið á þorrablót þetta kvöldið.
Við vorum á viðburðavaktinni, hentum okkur á hundavaði yfir það helsta sem var á seyði og hringdum austur í Neskaupstað. Þar var fólk í óða önn að undirbúa þorrablót og ekki bara eitthvað þorrablót heldur skemmtilegasta þorrablót landsins segja mörg - nefnilega Kommablótið sem haldið var upp á þetta kvöldið í 60. sinn. Einn af skipuleggjendum, Guðmundur Sigfússon var á línunni.
Svo mættu þau Anna Margrét Káradóttir söng-, leikkona og skemmtikraftur og Hilmar Guðjónsson leikari og skemmtikraftur til okkar með fulla vasa af meðmælum um hitt og þetta í hinni vinsælu Meðmælasúpu! Þar fórum við úr leikhúsum borgarinnar í djassinn, Tolstoj, Tómas Jónsson, Dönsku konuna, umami-salt og allt hvað eina.
Að endingu var það tónlistin sem spilaði stóra rullu! Í bland við allt það vinsælasta á Rás 2 þessi misserin var tónlist þáttarins valin mestan partinn af hlustendum en óskað var eftir tillögum um dæmi um þá tónlist sem best gæti lýst tíunda áratuginum, sumsé níutíu og eitthvað - eða næntís! Ef þú þyrftir að útskýra 90’s tónlist með einu lagi … yrði það Fugees, Spice Girls, Björk eða Blur? Hver væri þín tillaga?
Frá 12:45
PLÁHNETAN - Funheitur
COOLIO - Gangsta's Paradise
TODMOBILE - Tryllt
RICHARD SCOBIE - Hate to see you cry
SOPHIE ELLIS BEXTOR - Murder On The Dancefloor
BRYAN ADAMS - Have you ever really loved a woman?
MIKE FLOWERS POPS - Wonderwall
ANTONIO BANDERAS FT. LOS LOBOS - El Mariachi
DAÐI FREYR - I don't wanna talk
TRINE DYRHOLM - Smuk som et stjerneskud
Frá kl. 14:05
HJÁLMAR - Upp í sveit
THE BREEDERS - Cannonball
PAUL SIMON - You Can Call Me Al
BJÖRK - Big Time Sensuality
HARRY STYLES - Watermelon Sugar
U2 - One
NÝDÖNSK - Frelsið
Frá kl. 15:05
BAGGALÚTUR - Bildudals grænar baunir
WHITE TOWN - Your Woman
BABYLON ZOO - Spaceman
PORTUGAL. THE MAN - Tanana
TLC - Waterfalls
SPOON - Taboo
MACY GRAY - I Try
PRODIGY - Breathe
BRITNEY SPEARS - Baby One More Time
RAGE AGAINST THE MACHINE - Killing in the name of