Helgarútgáfan

Salka sat í súpunni, sullandi menning á Skaganum og list unga fólksins

Helgarútgáfan heilsaði hress og kát á síðasta degi októbermánaðar. Við þefuðum upp menningar- og mannlífið víða um land en það er svona það helsta sem við gerum jafnan á laugardögum í Helgarútgáfunni og af nægu er að taka - og nóg til frammi.

Á Akranesi eru Vökudagar í gangi, einnig tónlistarhátíðin Heimaskagi og aukinheldur Lilló hardcore, skemmtileg og hressandi pönkhátíð. Samkvæmt útreikningi eru um 40 hljómsveitir sem koma fram í fjölmörgum húsum á Akranesi um helgina. Við heyrðum í hressum menningarneytanda á Akranesi, sjálfum bæjarlistamanninum Angelu Árnadóttur.

Við heyrðum líka af annarri hátíð sem er ekki síður spennandi, sú fór einmitt af stað seinna þennan dag og það er Unglist, listahátíð unga fólksins. Til að segja okkur frá þessu öllu saman kom Oddur Júlíusson leikari í heimsókn sem er með puttana í skipulagi hátíðarinnar.

Loks var Meðmælasúpan á sínum stað - og það var hin bráðefnilega og snarskemmtilega leikkona Salka Gústafsdóttir sem kom í heimsókn. Hún sló í gegn meðal annars í sýningu þjóðleikhússins Nýtt eldhús eftir máli og skemmtir landanum einnig á föstudagskvöldum með hressandi innkomum í vikunni með Gísla Marteini.

FJALLKONAN - Bömpaðu baby bömpaðu

KISS - Rock'n Roll All Nite

MARSIBIL - Íslenskur drengur

THE STROKES - Going Shopping

PÁLMI GUNNARSSON - Hvers vegna varst'ekki kyrr?

DEVO - Whip it

KINGS OF LEON - My Whole World

BJARNI ARASON - Bara ég og þú

TINA DICKOW, EMILIANA TORRINI - This Fire!

S.H. Draumur - Grænir frostpinnar

STUÐMENN - Bíólagið

GAMMOSÍUR - Benson.

STRAX - Havana

SNORRI HELGASON - Eina nótt

GAURAGANGUR - Barngóði hrægammurinn

MONO TOWN - Peacemaker

HATARI - Hatrið mun sigra

RETRO STEFSON - Qween

ADAM AND THE ANTS - Stand and Deliver

ROBYN - Sucker For Love

Á MÓTI SÓL - Spenntur

AUÐUR - Eyðimörk! Geneva!

BJÖRK OG DAVID ARNOLD - Play Dead

VILLAGE PEOPLE - In the navy

THE SPECIALS - Ghost Town

MADNESS - House Of Fun

MICHAEL JACKSON - Thriller

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Þættir

,