Helgarútgáfan

Magga Eiríks minnst og meðmæli Ásu Dýra og Óttars Proppé

Helgarútgáfan helgaðist mestu leyti þeim fregnum okkar fremsta tón- og textaskáld, Magnús Eiríksson hafi fallið frá daginn áður. Hans minning var heiðruð með örlitlu ágripi úr sögu þessa einstaka listamanns auk hans tónlistar og þessu öllu mun Rás 2 gera enn betur skil á næstu dögum og vikum. Við heyrðum í nokkrum aðdáendum Magnúsar, góðu fólki sem hefur einnig spreytt sig á dægurlagaforminu líkt og Magnús gerði svo vel og kannski einna best - það er kannski ekki hollt fyrir öll þau sem eftir Magga komu reyna stilla stöngina á Magnús Eiríksson í sínum lagasmíðum og reyna hoppa yfir en áhrif hans á allt tónlistarfólk er eflaust óumflýjanlegt. Og það góða fólk sem við heyrum í hér á eftir á það sammerkt hafa hlustað, pælt og prófað sig í tónlistarveröld Magga Eiríks. Þetta eru þau Una Torfadóttir, Gunnar Lárus Hjálmarsson Dr. Gunni, Sváfnir Sigurðarson, Guðrún Ýr Eyfjörð GDRN og Bragi Valdimar Skúlason.

En við sleppum vitaskuld ekki föstum liðum og Meðmælasúpan góða, var á sínum stað. Þar litu við, þau Ása Dýradóttir verkefnastjóri hjá Tónlistarborginni Reykjavík sem er einnig kunn sem bassaleikari í hljómsveitinni Mammút en sveit sigraði Músiktilraunir Tónabæjar árið 2004 og fyrrum ráðherra og einnig rokkstjarna séntilmaðurinn Óttarr Proppé. Þau ætla segja okkur sitthvað um það sem þau hafa svona hnotið um skemmtilegt á síðustu misserum sem óhætt er mæla með fyrir hlustendur.

EIns og vera ber þá var tónlistin mestu úr ríkum sarpi Magnúsar Eiríkssonar, í bland við annað góðgæti:

Frá kl. 12:45:

BRUNALIÐIÐ - Ég er á leiðinni

STUÐLABANDIÐ - Elska þig enn

MAMMÚT - Rauðilækur

DR. SPOCK - Skítapakk

VALDIMAR - Karlsvagninn

MAGNÚS EIRÍKSSON - Braggablús

CAMERON WINTER - Love Takes Miles

Frá kl. 14:00:

MAGNÚS EIRÍKSSON & KK - Kóngur einn dag

MINNIE RIPERTON - Les Fleurs

MÚSIKHVATUR - Vals nr.1 (en ekki vals)

PÓNIK OG EINAR - Jón á líkbörunum

MAGNÚS EIRÍKSSON - Einhvers staðar, einhvern tímann aftur

KK OG MAGNÚS EIRÍKSSON - Hudson Bay

MANNAKORN - Lifði og í Reykjavík

RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR - Draumaprinsinn

Frá kl. 15:00:

JÓN JÓNSSON, SILVÍA NÓTT - Einhver þarf segja það

KK & MAGNÚS EIRÍKSSON - Ómissandi fólk

MANNAKORN - Gamli góði vinur

MUGISON - Gúanó kallinn

CEASE TONE, RAKEL & JÓIPÉ - Ég var spá

MANNAKORN - Bót á rassinn

KK - Á æðruleysinu

THE JAM - Going Underground

MANNAKORN - Kontóristinn

Frumflutt

10. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,