Sterk staða Meloni á Ítalíu
Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina. Ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami forsætisráðherrann…
Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina. Ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami forsætisráðherrann sitji í fjögur ár eins og raunin er með Georgiu Meloni. Hún varð fyrsta konan til að leiða ríkisstjórn þegar hún tók við 2022 og er óskoraður leiðtogi hægriafla á Ítalíu.
Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður á Gímaldinu, sem býr á Ítalíu, var gestur Heimsgluggans. Þau Bogi Ágústsson ræddu ítölsk stjórnmál, efnahagslíf og horfur, mun á Suður- og Norður-Ítalíu, afstöðu ítalskra stjórnmálamanna til Evrópu og stríðsins í Úkraínu og mörg önnur mál.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.