07:03
Morgunútvarpið
Friðheimar,flugdólgar,sportið og peptíð spennandi framtíð?

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Nýsköpunarþing 2026 mun að þessu sinni beina sjónum að nýsköpun á landsbyggðinni - tækifærum, áskorunum og þeim fjölbreyttu hugmyndum sem verða að veruleika um allt land. Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima, flytur þar erindi við ætlum að heyra í honum. Við minnum á að Nýsköpunarþing er líka í streymi og að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra veitir Nýsköpunarverðlaun Íslands.

Við fáum reglulega fréttir af flugdólgum sem flugfreyjur og flugþjónar þurfa að hafa hemil á til að tryggja öryggi farþega. En hversu algengt er að það þurfi að bregðast við æstum og ofbeldisfullum farþegum? Hvernig er brugðist við og hvernig fer þjálfunin fram? Jóna Björg Jónsdóttir flugfreyja og Egill Árni Jóhannesson flugþjónn koma í heimsókn og fræða okkur um það.

Við höldum áfram að fjalla um peptíð en þau eru á allra vörum um þessar mundir. Forstjóri Lyfjastofnunar varaði við notkun ólöglegra peptíða í þættinum okkar á þriðjudaginn og í dag fáum við til okkar Örnu Guðmundsdóttur, innkirtlalæknir á Landspítala. Hún flytur fyrirlestur á fundaröðinni Heilsan okkar í Veröld, húsi Vigdísar á morgun undir yfirskriftinni: Peptíð, spennandi framtíð?

Anna Sigrún Davíðsdóttir kemur úr íþróttadeildinni með brakandi ferskan mola úr heimi íþróttanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 50 mín.
    ,