
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var löngun til að skapa tónlist sem sigldi aðeins utan við meginstrauma þess tíma. Árin liðu og ekkert gerðist en árið 2024 var ákveðið að reyna að finna upptökurnar og þær fundust á Þjóðskjalasafninu og nú árið 2026, 30 árum eftir upptökurnar, er tónlistin komin út á vínilplötu og á streymisveitum. Þeir félagar komu til okkar í dag og við fengum að heyra meira af þessu ævintýri í dag.
Í dag er alþjóðlegi slagdagurinn og Heilaheill vill vekja athygli, eins og gert er um allan heim, á fyrstu einkennum heilablóðfalls, sem eru: sjóntruflun og skyntap, lömun útlima, andlitslömun og glatað mál. Saman koma þessi einkenni í skammstöfunina S-L-A-G. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans og Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, komu til okkar í dag og fræddu okkur um fyrstu einkennin og snjallforritið Heilaheill sem hægt er að fá ókeypis í snjallsíma.
Jónatan Garðars kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að tónlistarmanninum Jóhanni G. Jóhannssyni. Hann samdi mikinn fjölda laga sem urðu gríðarlega vinsæl og fylgja þjóðinni enn og við heyrðum þrjú þeirra í þættinum og Jónatan sagði okkur frá ævi Jóhanns og tónlistarferli hans.
Tónlist í þættinum:
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Mother / 3toOne (Egill Ólafsson, Ingólfur Sv. Guðjónsson og Sigurður Gröndal)
Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti Páls Postula úr fyrra Kórinthubréfi)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.