Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Erlend stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans í dag. Bogi Ágústsson fór yfir nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael og talaði aðeins um komandi kosningar í Bandaríkjunum.
Innlend stjórnmál voru líka til umfjöllunar, það er að segja traust til stjórnmálafólks. Viktor Orri Valgarðsson aðjúnkt við Háskóla Íslands fór yfir niðurstöður sínar á þróun trausts, sér í lagi eftir efnahagshrunið 2008.
Nokkuð hefur verið um kaup útlendinga á bújörðum á Íslandi að undanförnu. Ekki eru til upplýsingar um hve margar jarðir útlendingar eiga - en hins vegar liggja fyrir niðurstöður könnunar á viðhorfum fólks í dreifbýli til jarðakaupa útlendinga, og eftir atvikum Íslendinga líka. Anna Karlsdóttir og Magnfríður Birnu Júlíusdóttir, dósent og lektor í landfræði, kynntu niðurstöðurnar.
Tónlist:
Una Torfadóttir - Appelsínugult myrkur.
Ásgeir Trausti Einarsson - Hringsól.
Emilía Hugrún Lárusdóttir - Einbúinn.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var löngun til að skapa tónlist sem sigldi aðeins utan við meginstrauma þess tíma. Árin liðu og ekkert gerðist en árið 2024 var ákveðið að reyna að finna upptökurnar og þær fundust á Þjóðskjalasafninu og nú árið 2026, 30 árum eftir upptökurnar, er tónlistin komin út á vínilplötu og á streymisveitum. Þeir félagar komu til okkar í dag og við fengum að heyra meira af þessu ævintýri í dag.
Í dag er alþjóðlegi slagdagurinn og Heilaheill vill vekja athygli, eins og gert er um allan heim, á fyrstu einkennum heilablóðfalls, sem eru: sjóntruflun og skyntap, lömun útlima, andlitslömun og glatað mál. Saman koma þessi einkenni í skammstöfunina S-L-A-G. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans og Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, komu til okkar í dag og fræddu okkur um fyrstu einkennin og snjallforritið Heilaheill sem hægt er að fá ókeypis í snjallsíma.
Jónatan Garðars kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að tónlistarmanninum Jóhanni G. Jóhannssyni. Hann samdi mikinn fjölda laga sem urðu gríðarlega vinsæl og fylgja þjóðinni enn og við heyrðum þrjú þeirra í þættinum og Jónatan sagði okkur frá ævi Jóhanns og tónlistarferli hans.
Tónlist í þættinum:
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Mother / 3toOne (Egill Ólafsson, Ingólfur Sv. Guðjónsson og Sigurður Gröndal)
Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti Páls Postula úr fyrra Kórinthubréfi)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Formaður Kennarasambands Íslands segir stefna í að forsendur núverandi kjarasamnings bresti og telur ólíklegt að félagsmenn samþykki breytingar á honum.
Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið.
Formaður Sameykis segir borgarstjóra hafa farið með rangt mál í Kastljósi í vikunni. Ljóst sé að borgin hafi farið of geyst í uppsagnir og þurft að bakka með sumar þeirra.
Æðstu leiðtogar Spánar eru komnir til héraðsins Castilla-La Mancha til að skipuleggja viðbrögð eftir mannskætt lestarslys í gær.
Áform um nánara samstarf Evrópusambandsins og Kanada verða kynnt á leiðtogafundi í Montreal í dag. Hugmyndir um einhvers konar aukaaðild Kanada að sambandinu hafa hins vegar verið slegnar út af borðinu.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra. Stofnunin hefur fengið sjö ábendingar vegna starfsemi Vopnabúrsins.
Barnamálaráðherra vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi og færa barnabætur uppá tvo til þrjá milljarða frá hátekjufólki til fátækustu foreldranna.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins. Þar hefur fólk áhyggjur af samþjöppun valds og að ákvarðanir um þeirra heimahaga verði teknar af lögreglustjórum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Lögreglustjórar sjá þó margir kosti við sameiningarnar og telja að ef rétt verði farið að geti breytingarnar orðið landsmönnum öllum til góða.
Í þætti dagsins verður rætt við dómsmálaráðherra, lögreglumenn og lögreglustjóra og við veltum því upp hvort breytingin feli í sér aukið samstarf og skilvirkni – og hvort hætt sé við að landsbyggðin líði fyrir breytinguna.
Umsjónarmaður: Ólöf Rún Erlendsdóttir
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.
Við rifjum meðal annars upp þegar nemendur í 10. bekk Djúpavogsskóla lögðu af stað fótgangandi yfir Öxi einn laugardagsmorgun í apríl 2026. Flest nemendanna stefndu á framhaldsnám við Menntaskólann á Egilsstöðum og þurfa því að ferðast reglulega á milli. Með göngunni vildu þau meðal annars vekja athygli á bágu ástandi Axarvegar. En hvernig er hljóðið í þeim nú þegar þau eru byrjuð framhaldsskóla?
Viðmælendur: Bergþóra Thea Birgisdóttir, Kolfinna Ásta Jónsdóttir, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, Ásdís Hafrún Benediktsdóttir, Hafdís Reynisdóttir, Þuríður Elísa Harðardóttir og Oddný Anna Björnsdóttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Þetta er síðasti þátturinn af þremur þar sem fjallað hefur verið um Trójustríðið og tónverk og bókmenntir sem því tengjast. Fyrsti þátturinn fjallaði um Trójustríðið sjálft, annar þáttur um heimferð Ódysseifs, eins helsta foringja Grikkja, að stríðinu loknu, og í þessum þætti er fjallað um heimkomu annars foringja úr Trójustríðinu, Agamemnons. Úr þeirri heimkomu varð mikil sorgarsaga sem sögð er í þríleiknum „Óresteiu“ eftir forngríska leikskáldið Aiskýlos. Meðal þeirra tónverka sem koma við sögu í þættinum eru óperan „Óresteia“ eftir Sergei Tanejev, söngverkið „Klýtemnestra“ eftir Rhian Samuel, óperan „Elektra“ eftir Richard Strauss og óperan „Ifígenía í Táris“ eftir Christoph Willibald Gluck. Einnig verða flutt brot úr útvarpshljóðritun frá árinu 1995 á leikritinu „Agamemnon“ eftir Aiskýlos, fyrsta leikritinu í Óresteiu-þríleiknum. Þar fer Margrét Helga Jóhannsdóttir með hlutverk Klýtemnestru drottningar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Kristján Guðjónsson.

Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.
Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár og er samin í samtali við Magneu en ljóð hennar fjallar um eldinn í iðrum jarðar en einnig eldinn umhverfis okkur, tortýmingaraflið sem fylgir honum en einnig sköpunarkraftinn. Við heyrum í þeim Hildigunni og Magneu í þætti dagsins.
Við kynnum okkur einnig einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndagerðar, Loft Guðmundsson, með Gunnar Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi hjá Kvikmyndasafni Íslands, en verk Lofts verða sýnd í Bíótekinu í Bíó Paradís um helgina. Og Sölvi Halldórssson rýnir í nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, Veislu þrjú.
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga og eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin sem er eftir Fjodor Dostojevskí kom upphaflega út árið 1880 og fjallar um þrjá bræður, svallarann Dmítrí, hugsuðinn Ivan og dýrlinginn Aljosha, og morð á föður þeirra. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins. Við spjöllum við Illuga um hvernig það er að lesa upp svona stórvirki. Þetta eru 1200 útprentaðar blaðsíður, rúmlega 100 lestrar, sem eru 50 klukkutímar í hlustun.
Fjord eða Fjörður er eldfim og umdeild, margverðlaunuð mynd eftir rúmenska leikstjórann Christian Mungiu. Myndin fjallar um íhaldssama kristna norsk-rúmenska fjölskyldu sem flytur frá Rúmeníu í smábæ í Noregi og lendir þar í átökum við barnaverndaryfirvöld, sem finnst uppeldisaðferðir fjölskyldunnar ótækar. Kolbeinn Rastrick hefur mjög sterkar skoðanir á myndinni.
Um síðustu helgi fór í loftið ný útvarpsstöð, reyndar ekki alvöru FM-útvarpsstöð heldur Plat-útvarp. Það eru plötuútgáfan Plata og plötusnúðahópurinn Plútó sem standa að Plat Radio sem ætlar að senda út í mynd og hljóði brakandi ferska raftónlist leikna í kjallara við Hlemm. Við fáum til okkar Guðmund Arnalds og Örlyg Arnalds sem standa að stöðinni.
Við kíkjum líka á nýja útgáfu á Ódysseifskviðu og heyrum tónlist sem mun hljóma á Iceland Airwaves í næstu viku.

Fréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.
Pétur Grétarsson slæst í för með hlustendum á leið í tónleikasal. Hann bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast dagskrá sinfóníutónleika sem taka við í beinni útsendingu.
Tónlist:
Macpherson before his execution - úr Six romances on verses by British poets
Rússneski bassasöngvarinn Peter Gluboky syngur. Natalia Rassudova leikur á píanó.
Barcarole - Jaques Offenbach - Die Berliner
Vier Tondichtungen nach Arnold Böcklin, op 128: III Die Toteninsel. Max Reger - Dresdner Philharmonie
The Battle of Skull Island - Henry Jackmann
Die Toteninsel op 45 - Andreas Hallén - Helsingborg Symphony Orchestra

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu.
Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Á efnisskrá:
- Eyja hinna dauðu, tónaljóð eftir Sergej Rakhmanínov.
- Sinfónía nr. 13, „Babí Jar“ eftir Dmítríj Shostakovitsj.
Einsöngvari: Alexander Roslavets.
Kórar: Karlakórinn Fóstbræður og Sönghópurinn Kyrja.
Stjórnandi: Andris Poga.
Kynnir: Pétur Grétarsson.

Útvarpsfréttir.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var löngun til að skapa tónlist sem sigldi aðeins utan við meginstrauma þess tíma. Árin liðu og ekkert gerðist en árið 2024 var ákveðið að reyna að finna upptökurnar og þær fundust á Þjóðskjalasafninu og nú árið 2026, 30 árum eftir upptökurnar, er tónlistin komin út á vínilplötu og á streymisveitum. Þeir félagar komu til okkar í dag og við fengum að heyra meira af þessu ævintýri í dag.
Í dag er alþjóðlegi slagdagurinn og Heilaheill vill vekja athygli, eins og gert er um allan heim, á fyrstu einkennum heilablóðfalls, sem eru: sjóntruflun og skyntap, lömun útlima, andlitslömun og glatað mál. Saman koma þessi einkenni í skammstöfunina S-L-A-G. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans og Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, komu til okkar í dag og fræddu okkur um fyrstu einkennin og snjallforritið Heilaheill sem hægt er að fá ókeypis í snjallsíma.
Jónatan Garðars kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að tónlistarmanninum Jóhanni G. Jóhannssyni. Hann samdi mikinn fjölda laga sem urðu gríðarlega vinsæl og fylgja þjóðinni enn og við heyrðum þrjú þeirra í þættinum og Jónatan sagði okkur frá ævi Jóhanns og tónlistarferli hans.
Tónlist í þættinum:
Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
Mother / 3toOne (Egill Ólafsson, Ingólfur Sv. Guðjónsson og Sigurður Gröndal)
Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti Páls Postula úr fyrra Kórinthubréfi)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga og eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin sem er eftir Fjodor Dostojevskí kom upphaflega út árið 1880 og fjallar um þrjá bræður, svallarann Dmítrí, hugsuðinn Ivan og dýrlinginn Aljosha, og morð á föður þeirra. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins. Við spjöllum við Illuga um hvernig það er að lesa upp svona stórvirki. Þetta eru 1200 útprentaðar blaðsíður, rúmlega 100 lestrar, sem eru 50 klukkutímar í hlustun.
Fjord eða Fjörður er eldfim og umdeild, margverðlaunuð mynd eftir rúmenska leikstjórann Christian Mungiu. Myndin fjallar um íhaldssama kristna norsk-rúmenska fjölskyldu sem flytur frá Rúmeníu í smábæ í Noregi og lendir þar í átökum við barnaverndaryfirvöld, sem finnst uppeldisaðferðir fjölskyldunnar ótækar. Kolbeinn Rastrick hefur mjög sterkar skoðanir á myndinni.
Um síðustu helgi fór í loftið ný útvarpsstöð, reyndar ekki alvöru FM-útvarpsstöð heldur Plat-útvarp. Það eru plötuútgáfan Plata og plötusnúðahópurinn Plútó sem standa að Plat Radio sem ætlar að senda út í mynd og hljóði brakandi ferska raftónlist leikna í kjallara við Hlemm. Við fáum til okkar Guðmund Arnalds og Örlyg Arnalds sem standa að stöðinni.
Við kíkjum líka á nýja útgáfu á Ódysseifskviðu og heyrum tónlist sem mun hljóma á Iceland Airwaves í næstu viku.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Nýsköpunarþing 2026 mun að þessu sinni beina sjónum að nýsköpun á landsbyggðinni - tækifærum, áskorunum og þeim fjölbreyttu hugmyndum sem verða að veruleika um allt land. Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima, flytur þar erindi við ætlum að heyra í honum. Við minnum á að Nýsköpunarþing er líka í streymi og að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra veitir Nýsköpunarverðlaun Íslands.
Við fáum reglulega fréttir af flugdólgum sem flugfreyjur og flugþjónar þurfa að hafa hemil á til að tryggja öryggi farþega. En hversu algengt er að það þurfi að bregðast við æstum og ofbeldisfullum farþegum? Hvernig er brugðist við og hvernig fer þjálfunin fram? Jóna Björg Jónsdóttir flugfreyja og Egill Árni Jóhannesson flugþjónn koma í heimsókn og fræða okkur um það.
Við höldum áfram að fjalla um peptíð en þau eru á allra vörum um þessar mundir. Forstjóri Lyfjastofnunar varaði við notkun ólöglegra peptíða í þættinum okkar á þriðjudaginn og í dag fáum við til okkar Örnu Guðmundsdóttur, innkirtlalæknir á Landspítala. Hún flytur fyrirlestur á fundaröðinni Heilsan okkar í Veröld, húsi Vigdísar á morgun undir yfirskriftinni: Peptíð, spennandi framtíð?
Anna Sigrún Davíðsdóttir kemur úr íþróttadeildinni með brakandi ferskan mola úr heimi íþróttanna.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Morgunverkin voru mýmörg og mikilvæg þennan fimmtudagsmorguninn. Við buðum upp á Mikilvæga málfarshornið en þá leit hún Anna Sigríður Þráinsdóttir við og ræddi ávörp og kveðjur fólks á millum. Eins og Góðan dag, gott kvöld og góða nótt. Má maður segja Góðan daginn? Eða má kannski ekki nota ákveðinn greini þarna?
Það var meira um rannsóknarvinnu í þættinum því rifjuð var upp nokkurra ára gömul stúdía um eyrnaorma og heilakláða. Þetta hljómar ekki einstaklega vel en snertir ástæðu þess hvers vegna við fáum lög á heilann.
Dagbækurnar voru dregnar fram og þar kom ýmislegt fram; Dolly Parton og Kenny Rogers, Tove Lo, Einar Örn Benediktsson og hljómsveitin The Who.
Hljómsveitin Dimma sem kynnti á dögunum nýja liðsskipan og útgáfu á nýrri tónlist, kíkti í heimsókn og við frumfluttum nýtt lag, Þegar dómklukkan slær. Loks fórum við yfir lista yfir bestu tónlistarævisögumyndirnar, annar listinn tæplega 20 ára gamall og hinn rétt um ársgamall.
MEMFISMAFÍAN - Syngdu
STUÐMENN - Út í veður og vind
BRÍET - Last Dance
AUÐUR - Eyðimörk! Geneva!
RÚNAR JÚLÍUSSON - Daginn í dag
JOHNNY NASH - I Can See Clearly Now
ALLMAN BROTHERS BAND - Ramblin Man
BECK - Loser
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Það styttir alltaf upp (Hljómskálinn)
DAÐI FREYR - Whole Again
THE WHO - My Generation
FLOTT - 20 og eitthvað
LEON BRIDGES - Watch You Dance
TINA DICKOW, EMILIANA TORRINI - This Fire!
FRIÐRIK DÓR, SINFONIANORD - Hvað er það versta sem gæti gerst?
DIMMA - Þegar Dómklukkan Slær
SAM FENDER, OLIVIA DEAN - Rein Me In
TOVE LO, STROMAE - Des Fleurs x Stromae
TEITUR MAGNÚSSON - Askur
LILY ALLEN - Not Fair
TINA TURNER - What's love got to do with it
THE WEEKND - I Can't Feel My Face
PURRKUR PILLNIKK - Annars góður
SHERYL CROW - All I Wanna Do
CAKE - Never there
HAM - Hellisheiði
BAHA MEN - Who Let The Dogs Out
SPIN DOCTORS - Two Princes
KAKTUS EINARSSON, JESSICA WINTER - 3rd Time
ARIANA GRANDE - Hate that i made you love me
DOLLY PARTON & KENNY ROGERS - Islands In The Stream

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Formaður Kennarasambands Íslands segir stefna í að forsendur núverandi kjarasamnings bresti og telur ólíklegt að félagsmenn samþykki breytingar á honum.
Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið.
Formaður Sameykis segir borgarstjóra hafa farið með rangt mál í Kastljósi í vikunni. Ljóst sé að borgin hafi farið of geyst í uppsagnir og þurft að bakka með sumar þeirra.
Æðstu leiðtogar Spánar eru komnir til héraðsins Castilla-La Mancha til að skipuleggja viðbrögð eftir mannskætt lestarslys í gær.
Áform um nánara samstarf Evrópusambandsins og Kanada verða kynnt á leiðtogafundi í Montreal í dag. Hugmyndir um einhvers konar aukaaðild Kanada að sambandinu hafa hins vegar verið slegnar út af borðinu.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra. Stofnunin hefur fengið sjö ábendingar vegna starfsemi Vopnabúrsins.
Barnamálaráðherra vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi og færa barnabætur uppá tvo til þrjá milljarða frá hátekjufólki til fátækustu foreldranna.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Doddi opnaði Popplandið fyrir almenningi í dag með skemmtilegri tónlist og hressandi sögum. Nýtt lag frá strákabandinu Iceguys, lag af nýrri íslenskri plötu sem var tekin upp fryrir 30 árum, söguna af manninum sem söngi vinsælasta lag hljómsveitarinnar Kiss í Bandaríkjum en þurfti að talsetja í bíómyndinni þeirra, KISS Meets the Phantom of the Park. Guðjón Jósef Baldursson, harðkjarnastjóri rokkhátíðarinnar Lilló sem fram fer á Akranesi um helgina var á línunni. Árni Matthíasson kíkti svo á Lovísu og gerði upp plötu vikunnar, Scavenger of Hope með Krumma. Upphitun fyrir Heima-Skaga, Iceland Airwaves pepp og margt fleira gott.

Útvarpsfréttir.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Hver eru eiginlega heildarlaun ráðherra? Hver er rekstrarkostnaður ráðherrabifreiðar, hver er síma- og netkostnaður ráðherra og er einhver aukakostnaður vegna maka í utanlandsferðum sem ríkið greiðir? Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, vill að þessar upplýsingar verði birtar opinberlega og að þær megi finna á einum stað. Hún kom til okkar.
Kjarasamningar kennara eru í hættu en formaður Kennarasambandsins telur ólíklegt að félagsmenn samþykki breytingar á honum fyrir laugardag, sem er síðasti dagurinn til að virkja forsenduákvæði. Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og formaður samninganefndar sveitarfélaga , ræddi við okkur.
Tími spurningarmerkjanna er runninn upp. Og hvað þýðir það eiginlega? Jú nú er víst kominn sá tími í Árneshreppi að vegurinn sem liggur þar um er kominn í vetrarþjónustu. Það þýðir að Vegagerðin sinnir ekki reglubundnu eftirliti með veginum og ábyrgðin á upplýsingagjöf um grjóthrun, ástand vegar og færð færist í hendur íbúa og sveitarstjórnar. Héðinn Birnir Ásbjörnsson, á sæti í samgöngunefnd sveitarfélagsins. Hann kom til okkar.
Þrír menn voru í gær dæmdir í sex til átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í Teslu sem rannsóknarlögreglukona hafði til umráða. Dómurinn taldi mönnunum öllum hafa verið kunnugt um að um hefnd væri að ræða. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, var á línunni.
Gervigreindin tröllríður nú öllu og hún er umdeild. Varað er við hættunni af henni, hún sögð munu taka störf af mannfólki í framtíðinni en svo er hún líka nytsamleg til að skrifa og laga texta, búa til myndir og jafnvel að greina stóra sem smáa hluti. En hvernig notum við hana til þess að létta okkur daglega lífið? Stefán Atli Rúnarsson eigandi gervigreindarnamskeid.is kom til að fræða okkur um það.
Núna er að fara af stað menningarhátíð á Akranesi sem ber heitir Vökudagar. Þar sem myndlist, tónlist og bókmenntir mætast. Hátíðin hefur verið haldin ár hvert frá 2002 til að efla mannlífið í bænum og lífga upp á skammdegið. Vera Líndal Guðnadóttir, verkefnastjóri menningarmála hjá Akranesbæ, sagði okkur betur af þessari menningarveislu.

Fréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Útvarpsfréttir.

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.