16:05
Víðsjá
Loftur Guðmundsson í Bíóteki, Þunnt skæni á logandi vök, Veisla þrjú/rýni

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár og er samin í samtali við Magneu en ljóð hennar fjallar um eldinn í iðrum jarðar en einnig eldinn umhverfis okkur, tortýmingaraflið sem fylgir honum en einnig sköpunarkraftinn. Við heyrum í þeim Hildigunni og Magneu í þætti dagsins.

Við kynnum okkur einnig einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndagerðar, Loft Guðmundsson, með Gunnar Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi hjá Kvikmyndasafni Íslands, en verk Lofts verða sýnd í Bíótekinu í Bíó Paradís um helgina. Og Sölvi Halldórssson rýnir í nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, Veislu þrjú.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 52 mín.
    ,